StuttMaría Björk

Núna er önnin búin og hef svo lítið að gera á daginn annað en að hanga sérstaklega þegar Magnea er sofandi en ég reyni samt að taka til þegar það þarf. En mér gekk vel þessa önn en á eftir að fá einkanir og ég á líka eftir að skila einu verkefni sem gildir 50 % af lokaeinkun en ég er búin að prenta svo mikið í vetur að pappírinn kláraðist í gær og ætlar Hjörleifur að redda því í dag :)

En það styttist rosalega í jólin og eins og ég er búin að segja nokkuð oft ætlum við litla fjölskylda að vera hjá tengdaforeldrum mínum sem verður bara gaman því þar sem þetta er fyrstu jól Magneu. Ég er búin að kaupa flest allar jólagjafi og búin að pakka þeim inn en samt eru jólakortin eftir og mér finnst svo leiðinlegt að bíða í röð í póstinum bara til að senda jólakortin en samt finnst mér gaman að skrifa þau og búa þau til. En í gær fórum við að vesenast og fórum fyrst í Kringluna og var svo geggjað mikið af fólki en við vorum ekki lengi þar fengum okkur að borða og kíktum í Steinar Wagie til að kíkja á skó handa litlu. Eftir það kíktum við í Just4Kids og sáum við jólasveina og fannst Magneu það rosa gaman og var ekki neitt hrædd og klappaði með lögunum sem þeir sungu. Eftir það fórum við í IKEA og keyptum loksins almennilegar gardínur inn í herbergi :) og svo fórum við í Bónus við MAX, og við Hjörleifur teljum að Bónus var eingöngu sett þarna til að auka viðskiptavini hjá MAX. En við fundum samt jólagjafir í þessari ferð okkar og er ég eiginlega fegin að vera búin með þann pakka...

En þanga til næst.

María Björk

Hef ekkert að geraMaría Björk

Ég sit hérna heima og flakka milli heimasíða og veit ekkert hvað ég á að gera. Þar sem ég er búiin að læra fyrir daginn og Magnea Rán sefur þá hef ég ekki mikið til að gera annað en að sitja á rassinum og bíða þanga til hún vaknar.Ég reyni annað slagið að hreyfa mig heima og fara út að labba eða gera einhverjar æfingar en samt dreg ég það til baka og geri ekki neitt. Ég segi alltaf við sjálfa mig að ég ætla að taka til en geri það ekki fyrr en ég kem heim af æfingum eða þegar Hjörleifur er heima og Magnea Rán sofandi. En eitt er vist að það verður rosa gott þegar önnin er búin en þá þarf ég að taka annað stress á mig sem eru jólin er ekkert minna en skóla stússið.......
En talandi um jólin, þar sem ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gefa Hjörleifi í jólagjöf því ég er búin að gefa honum svo margt að ég hef engar hugmyndirSkömmustulegur
 
En ég þarf að fara þar sem litla er vöknuð......

Þessi færsla er læst með lykilorði.María Björk

MyndirMaría Björk

Það eru komnar myndir úr afmæli Dórunnar

Þvílíkt vesenMaría Björk

Ég þoli ekki stundum hvernig er farið með okkur stelpurnar í Ármanni. Við áttum að spila fyrsta leikinn okkar í næstu viku og móti Njarðvík en við ætluðum að færa hann. Þannig að fyrirliðinn okkar lét þau í kkí vita fyrir svona sirka 3 vikum að þurfti að færa hann en fengum ekkert svar fyrr en í vikunni sem er bara leiðinlegt. En við fengum að færa hann og fyrsti leikurinn okkar er á móti snæfell 21 október í laugardalshöllinni.

En annars er allt gott að frétta, við erum bæði á fullu í skólanum og gengur allt vel. Magnea er orðin dugleg og verður það með hverjum deginum sem líður. Hún er farin að segja mamma, en það er soldið síðan hún sagði það, hún er farin að skríða út um allt og er farin að standa með hlutum og reynir að labba meðfram.

En við sláumst seinna.

Endilega svarið ;)María Björk

Elsku_______.
Þú ert með falleg/an ______.
Þú lætur mig_______.
Þú ættir að_______.
Dag einn mun ég ______.
Þú og ég = ________.
Ég ef sæi þig núna myndi ég __________.
Ég vil________ þig/þér.
Ég myndi byggja _______ bara fyrir þig
Ef ég gæti sungið hvaða lag sem er fyrir þig væri það _________.
Við gætum __________ undir stjörnunum
Kveðjur,
_______________
(P.S. ______________.)

Mundiru kyssa mig?
[] ójá!
[] já
[] nei
[] kannski
[] búin að því

Er ég aðlaðandi?
[] ónei!
[] heit/ur
[] ágæt/ur
[] sæt/ur
[] æðisleg/ur
[] Sexy
[] ljót/ur

Helduru að ég sé hrein/nn?
[] já
[] Nei
[] Veit ekki


Nefndu eitthvað eitt sem að þú myndir gera með mér þegar u myndir hitta mig?


Ég er…
[] Vinur
[] Smá skot
[] Kærasta/kærasti

Myndiru tala við mig ef að þú værir að sjá mig í fyrsta sinn?
[] já
[] nei
[] kannski

Þú vilt…
[] Vera með mér
[] Kúra með mér
[] Spjalla við mig
[] Hitta mig
[] Gera eitthvað saman


Ætlar þú að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti gert þetta við þig?
[] já
[] nei

Helgin 28-30 sept.María Björk

Úrslitin í kvenna körfunni var í gær og fór ég á báða leikinn og var þetta ágætist skemmtun og eru úrslitin á morgun kl 14:00 og karlarnir eftir þeim leik. 

Ég er sjálf að fara a keppa á morgun, æfingaleik, á móti breiðablik kl 18:00

Reykjavíkurmótið byrjar í næstu viku.
Fyrsti leikurinn okkar er á miðvikudaginn 3.okt kl 19:15 á móti KR, annar leikurinn 6 okt kl 16:00 á móti Val og 10 okt kl 19:15 á móti Fjölni. 

Deildin byrjar 19.okt, fyrstu leikurinn er á móti UMFN (gamla lliðinu mínu)kl 19:15  í Njarðvík.

Ármann/Þróttar partýMaría Björk

Á morgun er fyrsta fjárupplunarpartýið okkar í körfunni í vetur og ég kvet alla að koma. Það er hægt að fá miða í forsölu hjá mér og kosta miðinn 500 kr og gildir einnig á alla heima leikinna hjá meistaraflokki karla og kvenna í vetur. Partýið mun verða í þróttarheimilinu og mun byrja kl 21:00 til 1:30, bjór kostar 250 kr og tvöfaldur á 500, mjög ódýrt. Ég bið ykkur að koma og styrkja okkur og ef þetta gengur vel þá mun pottþétt verða annað eftiráramót, endilega hafið samband við mig til að fá betri upplýsingar um þetta allt saman.

María Björk.

Allt brjálað að gera....María Björk

Ég löt að blogga hérna og ég lofa að taka mig á núna ;)

Það er ekkert mikið búið að ske annað en að æfingarnar hjá mér eru byrjaðar á fullu og verður lítill hægt að vera með mér því ég ætla einhvernveginn að reyna að fara í box Óákveðinn  og hef ekki hugmynd um hvernig ég ætla að því þar sem æfingar munu verða 4 sinnum í viku og leikir á föstudögum. Svo komst ég inn í MK :) og geggt ánægð með það.


En látum þetta gott heita og ég lofa að vera duglegri.

1. júníMaría Björk

Ég vil byrja á því að óska Erlu Maríu til hamingju með daginn í dag ;)

Svo á litla 5 mánaða afmæli á morgun, jiiii hvað þetta er fljót að líða, mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar ég fann út að ég var ólétt. Svo á litla að fara í sprautu á næstuni og þetta á að vera verri sprautan hjá okkur og það er líklegt að hún gæti orðið veik af þessari sprautu sem er ekki gott :(

En annars er Anna M að koma í bæinn og erum við að fara halda upp á afmælið hennar á morgun en hún verður ekki 20 fyrr en 13 júní og þá er alltaf gaman þegar e-r af vinahópnum á afmæli því þá fáum við að vígja hana að vera komin á 30 aldurinn.Glottandi 

En ég kveð í bili.
María Björk.

Spánarferð

Auglýsing

Afmælið mitt

Um mig

  • Nafn: María Björk
  • Netfang: majabjork@gmail.com
  • Staður: Hafnarfjörður
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð/trúlofuð
  • Um mig: Ég er 22 ára móðir og nemi í MK.
  • Annað: Móto: Komdu fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig.

Innskráningar kubbur